HI ráðgjöf hefur sérfhæft sig í hönnun þverfaglegra þjónustuverka og innleiðingu á Kaizen með Mega ferlastjórnun. Hönnun þjónustu og þjónustuloforða og önnur þverfagleg þjónusta er hönnuð út frá greiningu þarfa og viðskiptareglna viðkomandi verkefna og deilda. Sérfræðingur HI ráðgjafar hefur sérhæft sig í viðskiptareglum verkefna sem tengist ekki eingöngu þjónustuloforðum heldur einnig kröfum laga og reglugerða, krafna frá stjórnendum og þörfum á þjónustu.

Við leggjum áherslu uppbyggingu samhæfðra stjórnkerfa, vel upplýst og menntað starfsfólk ásamt því að raða réttu fólki á réttan stað. Við leggjum áherslu á að leggja niður tvíverknað og að fara vel yfir hlutverk og stefnu þjónustu áður en farið er að laga eða hanna. Vel uppsett stefnumótun og vel hannað hlutverk er grunnurinn að uppbyggingu þjónustu sem virkar.

Við innleiðingu á ferlastjórnun með Mega leggjum við áherslu á að Kaizen sé partur af ferlinu. Kaizen er aðferðafræði sem leggur áherslu á stöðugar litlar framfarir og að allir taki þátt, starfsmenn jafnt sem stjórnendur. Afurðin er iðulega hagræðing í rekstri, markvissari vinnubrögð og stöðugar litlar framfarir sem halda fyrirtækinu eða stofnuninni frá þeirri hættu að staðna.

HI ráðgjöf hefur sérhæft sig í rafrænum eyðublöðum sem styðja við góða þjónustu og byggja upp þekkingu á fjölda óska um þjónustu eða fyrirspurnir hvers málaflokks fyrir sig til framtíðar.

HI ráðgjöf hefur sérhæft sig í gæðastjórnun og leggur áherslu á innleiðingu á gæðastjórnunarstaðlinum ISO 9001 sem styður stjórnendur og starfsmenn við rekstur á heilbrigðri starfsemi. Einnig mælir HI ráðgjöf með innleiðingu á leiðbeiningarstaðlinum ISO 31000 sem tekur á áhættustjórnun þverfaglegt yfir reksturinn.

HI ráðgjöf hefur hannað nálgun fyrir stjórnendur og starfsmenn til að vinna saman að áhættustjórnun. Nálgun sem dregur fram samstarf og upplýsingaflæði jafnt til starfsmanna og stjórnenda. Hafðu samband og við kynnum fyrir ykkur frábæra lausn sem virkar og býður upp á að hagræðing og áhættustjórnun verði daglegur viðburður en ekki vinna sem stendur yfir einu sinni á ári.

HI ráðgjöf styður stjórnendur og fyrirtæki við uppbyggingu og innleiðingu á gæðastjórnun. Einnig hefur HI ráðgjöf sérhæft sig í hönnun á innra eftirliti. Við bæði aðstoðum við innleiðingu á innra eftirliti eða sjáum um innra eftirlit fyrir viðkomandi fyrirtæki.

Við mælum með þessari vefkynningu sem fjallar um gott dæmi á endurhönnun á viðskiptamódeli til að efla skilvirkni í rekstri. Hi ráðgjöf notar sömu aðferðafræði og er samstarfsaðili Mega sem vann að þessu verkefni með Procter & Gamble

Vefkynning í ca. 30 mínútur – við mælum með þessari kynningu fær 5 stjörnur